Fréttalisti

fradsla

Fjölsóttur kynningarfundur um rammasamninga

Yfir 100 manns sóttu kynningarfund á Grand hótel

15.2.2008

Vel yfir 100 manns sóttu velheppnaðan kynningarfund Ríkiskaupa um rammasamninga á Grand hótel í gær.

Á fundinum kynnti Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa væntanleg rammasamningsútboð á árinu 2008.

Þá fóru verkefnastjórar hjá Ríkiskaupum stuttlega yfir nokkra nýja og nýlega rammasamninga auk þess sem seljendur í vinnufata- og ritfangasamningum kynntu stuttlega sín fyrirtæki.

Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir hélt erindi um rammasamninga og hvernig unnt er að nýta þá sem best sem innkaupatól.

Birna Bjarnadóttir hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins rak síðan lestina með skemmtilega tölu um reynslu heilsugæslunnar af því að nota rammasamninga og rafræn innkaupakerfi í tengslum við þá.

Fundarstjóri var Júlíus S. Ólafsson.

Glærur frá erindum er að finna hér f. neðan. Sú nýbreytni var einnig tekinn upp að fundurinn var tekinn upp og myndskeið frá fundinum verður sett inn hér þegar það er tilbúið á vefinn, strax eftir helgina. Það er von okkar hjá Ríkiskaupum að þetta muni nýtast viðskiptavinum okkar út um allt land.

Erindi Guðmundar Hannessonar

Erindi verkefnastjóra

Erindi Jóhönnu E. Hilmarsdóttur

Myndskeið frá kynningarfundi



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.