Fréttalisti
Tilboð opnuð í sjúkraflug til Vestmannaeyja
Eyjaflug bauð lægst í sjúkraflug
Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboðið í sjúkraflug milli Vestmannaeyja og lands. Þrjú flugfélög skiluðu inn tilboðum; Flugfélag Vestmannaeyja, Fjarðaflug og Íslandsflug. Slakað hefur verið á kröfum um viðbragðstíma á flugleiðinni.
Nýr samningur um sjúkraflugið tekur gildi 1. apríl á þessu ári. Samningstíminn verður til 33 mánaða með möguleika á tveggja ára framlengingu. Íslandsflug hefur síðan í júlí 2007 séð um sjúkraflugið en félagið tók við af Landsflugi sem sagði upp samningnum.
Tilboð flugfélaganna voru þrískipt; grunngjald fyrir hvert sjúkraflug; gjald fyrir hvert staðalsjúkraflug og í þriðja lagi kostnaður fyrir hverja klukkustund umfram staðalsjúkraflug. Flugfélag Vestmannaeyja átti tvö tilboð. Lægra tilboð þess var 27.990.000 fyrir grunngjaldið, sem er rúmlega 700.000 krónum lægra en kostnaðaráætlun.
Fjarðarflug bauð tæpar 36 miljónir en hæsta tilboðið í grunngjald sjúkraflugsins átti Íslandsflug, sem bauð tæpar 44 miljónir. Hingað til hefur þess verið krafist að flugfélag geti ávallt sinnt sjúkraflugi innan tilskilins tíma en samkvæmt útboðslýsingu nú skal rekstraraðili sjúkraflugsins leitast við að geta sem oftast boðið upp á viðbragð innan tilskilins tíma. Þetta mun vera gert svo rekstraraðilar þurfi ekki að halda úti flugmönnum á bakvöktum við sjúkraflugið.
Sjá fréttavef RÚV

