Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • sjova-ruv2

RÚV ohf. semur við Sjóvá um vátryggingar

Vel heppnað útboð

8.1.2008

Ríkisútvarpið ohf. gekk til samninga á gamlársdag við Sjóvá um vátryggingar félagsins en þeir buðu best í heildarpakkann. Erfitt reyndist að meta til fulls ávinning útboðsins þar sem RÚV var að bæta við sig tryggingum sem þeir ekki höfðu áður. Útboðið náði meðal annars til, brunatrygginga fasteigna, húseigandatrygginga, bifreiðatrygginga auk annarra liða.

Að sögn RÚV eru þeir hæst ánægðir með árangurinn sem fór langt fram úr þeirra væntingum. Segja má að heildarniðurstaðan hafi verið sú að verkefnið hafi heppnast mjög vel.

 

Jón Ingi Benediktsson hjá RÚV ohf. og Þór Sigfússon hjá Sjóvá undirrituðu samninginn á gamlársdag.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica