Fréttalisti
Nýr samningur um brunatryggingar ríkisins
Vörður tryggingar hf. með besta boð
Vörður tryggingar hf. og Ríkiskaup hafa undirritað samning þess efnis að Vörður muni sjá um brunatryggingar fyrir allar fasteignir ríkisins,sem eru tæplega 2.000 talsins um allt land.
Samningurinn var gerður að undangengnu útboði en Sjóvá var með þessar tryggingar áður. Tilboð Varðar hljóðaði upp á rúmlega 140 milljónir króna á ári, en samningurinn er til þriggja ára og því er heildarvirði hans rúmlega 400 milljónir króna.
Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar, og Júlíus Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, undirrituðu tryggingasamninginn.
Sjá nánar á vef Varðar trygginga hf.

