Fréttalisti

tulkar

Nýr rammasamningur um túlka- og þýðingaþjónustu

Fyrsti rammasamningur ríkisins um túlka- og þýðingaþjónustu

19.11.2007

Undirritaður hefur verið rammasamningur um túlka- og þýðingaþjónustu.

Samið var við eftirfarandi aðila:

Alþjóðahús og Intercultural Ísland ehf. í flokkum A og C.

Markmál ehf. og Skjal ehf. í flokkum C og D.

Þetta er fyrsta rammasamningsútboð ríkisins á þessari tegund þjónustu og eru miklar vonir bundnar við samninginn.

Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa sá um útboðið.

Þörf hins opinbera fyrir túlkun og þýðingar hefur aukist mjög á undanförnum árum af ýmsum ástæðum.

Í ákveðnum tilvikum er um að ræða lögboðinn rétt borgaranna til túlkunar, en í vaxandi mæli er um að ræða frumkvæði hins opinbera til að gera margvíslegar upplýsingar aðgengilegar á fleiri tungumálum.

Útboðinu var skipt upp í eftirfarandi þjónustuflokka (útboðsflokka):

A. Almenn túlkaþjónusta

B. Þjónusta löggiltra dómtúlka

C. Almenn þýðingaþjónusta

D. Þjónusta löggiltra skjalaþýðenda

Heimilt var að bjóða í einstaka hluta (þjónustuflokka) útboðsins. Undanskilið þessu útboði eru táknmálstúlkun sem og þýðingar sjónvarpsefnis fyrir RÚV ohf.

Fimm tilboð bárust frá jafnmörgum aðilum þó ekkert í flokk B sem er þjónusta löggiltra dómtúlka.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.