Fréttalisti

Mynd frá ráðstefnu

Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2007

Grand hótel Reykjavík, 6. nóvember nk.

1.11.2007

Aðalræðumaður ráðstefnunnar að þessu sinni er Bettina Jensen, forstöðumaður þjónustu- og rekstrarsviðs Danmarks Radio. Hún mun fjalla um skipulag innkaupa hjá DR og þann árangur sem þar hefur náðst fram með greiningarvinnu, stefnumótun og ferlum, ásamt því að ræða framtíðarsýn DR í innkaupum. Erindið ber titilinn "Procurement in Danish Broadcasting Corporation - analysis, policy, processes and the future" og er flutt á ensku.

Hægt er að lesa meira um Bettina Jensen hér.

Gunnar H. Hall, fjársýslustjóri er næsti ræðumaður á dagskránni. Hann mun fjalla um greiðslumiðlun og rafrænan reikning, stöðu þessara mála á Norðurlöndunum (og jafnvel víðar) og hugleiðingar um hvað við hyggjumst gera á næstu árum í því samhengi.

Gunnar hefur stjórnað Fjársýslu ríkisins frá árinu 2002 en það er allstór stofnun með um 73 starfsmenn. Eitt umfangsmesta verkefni undanfarinna ára (fyrir utan hefðbundna starfsemi stofnunarinnar) er innleiðing á ný fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins. Gunnar hefur fengist við ýmis nefnda- og trúnaðarstörf á vegum fjármálaráðuneytisins og Hagstofu Íslands á innlendum og erlendum vettvangi og skrifað greinar um opinber fjármál í íslenskum og erlendum rit.

Halldór B. Þorbergsson hjá Milestone er síðan með fyrirlestur um útvistun og einkaframkvæmdir.

Halldór er hagfræðingur að mennt og starfaði hjá Viðskiptaráði Íslands áður en hann hóf störf hjá Milestone.

Dr. Helgi Þór Ingason, dósent hjá Háskóla Íslands er með síðasta fyrirlestur f. hádegisverð, um verkefnastjórnun og helstu lykilþætti í aðferðafræði hennar.

Helgi Þór Ingason er PhD í framleiðsluferlum í stóriðju frá Norska Tækniháskólanum í Þrándheimi og MSc í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Helgi Þór er dósent við verkfræðideild Háskóla Íslands. Hann er forstöðumaður MPM náms við verkfræðideild sem er fjögurra missera meistaranám í verkefnastjórnun. Einnig er hann í forsvari fyrir námsbrautina Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntunarstofnun HÍ og nýja námsbraut í gæðastjórnun í samstarfi verkfræðideildar og Endurmenntunarstofnunar. Helgi Þór hefur alþjóðlega vottun sem verkefnastjóri (Certified Senior Project Manager).

Málstofur eftir hádegið - Gagnvirk fræðsla

Málstofurnar eru að þessu sinni að loknum hádegisverði og skiptast í tvær línur; Fræðslulínu og Útboðslínu.

Málstofurnar byggjast upp af fyrirlestrum/kynningum ásamt fyrirspurnum og umræðum en þátttakendur eru hvattir til að taka virkan þátt í umræðunum.

Fræðsla

Fyrri málstofan í fræðslulínunni er tileinkuð nýja markaðstorginu sem leysir gamla RM af hólmi.

Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri Vörusjár sem er rekstraraðili torgsins mun kynna torgið og fara yfir hagnýt atriði í innleiðingu og notkun þess. Þessi málstofa er ætluð öllum þeim sem áhuga hafa á að nýta sér þá innkaupaleið sem rafrænt markaðstorg er og hentar bæði kaupendum og seljendum.

Seinni málstofan í fræðslulínunni fjallar um Samstarfsvettvang um opinber innkaup.

Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa mun fjalla um Samstarfsvettvanginn og tilgang hans, útboð á nýsköpunarverkefnum ásamt nýútkomna handbók um nýsköpunarkaup. Hægt er að kynna sér Samstarfsvettvanginn hér á vef iðnaðarráðuneytisins. Málstofan er ætluð jafnt kaupendum sem seljendum.

Útboð

Fyrri málstofan í útboðslínunni er tileinkuð Útboða; rafrænu útboðsferli ásamt rafrænum niðurboðum.

Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum mun kynna Útboða-rafrænt útboðsferli.

Rafrænt útboðsferli er í nýsköpunarverkefni sem hæfir framsæknum fyrirtækjum og stofnunum. Fjölmörg lönd sem Íslendingar bera sig saman við að stíga sín fyrstu skref við að gera allt ferlið rafrænt og viðskiptavinavænt. Hjá Ríkiskaupum er þetta ferli að hluta rafrænt og að hluta á pappírsformi. Þetta er og verður samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga.

Útboði verður "heildar umsýslu- og skjalastjórnunarkerfi vegna útboða", allt frá gerð útboðsgagna, auglýsingum, móttöku tilboða og úrvinnslu þeirra.

Ragnar Marteinsson hjá Gatetrade á Íslandi mun síðan fjalla um rafræn niðurboð og þá möguleika sem þau bjóða upp á.

Seinni málstofan í útboðslínunni fjallar síðan um hugbúnaðarmál.

Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa fjallar um vanda kaupenda þegar kemur að kaupum eða leigu á algengum hugbúnaði s.s. skrifstofuvöndlum (Office) og stýrikerfum fyrir netþjóna og hvaða kostir eru í boði. Einnig verður farið yfir þau atriði sem kaupendur/notendur þurfa að hafa í huga við kaup eða leigu á hugbúnaðarleyfum til þess að fá þau þanni hugbúnað og þjónustu við hann sem þörf er fyrir hverju sinni, hvorki meira né minna. Þá verður rætt hvaða kröfur er sjálfsagt og eðlilegt að kaupendur/notendur geri til seljenda og þjónustuaðila hugbúnaða. Á málstofunni er gert er ráð fyrir fyrirspurnum og athugasemdum þátttakenda og umræðum um þau atriði sem þátttakendur telja áhugaverð.

 

Ráðstefnunni lýkur síðan á léttu nótunum þar sem Jón Gnarr fer á kostum í stuttum fyrirlestri um þjónustu og húmor ásamt því að boðið er upp á léttar veitingar.

 

HNAPPUR_DAGSKRA          hNAPPUR_SKRANING

 

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.