Fréttalisti

Bettina_Jensen

Bettina Jensen frá Danmarks Radio á Innkauparáðstefnu Ríkiskaupa 2007

Aðalræðumaður ráðstefnunnar í ár er Bettina Jensen, forstöðumaður þjónustu- og rekstrarsvið DR

24.10.2007

Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2007 verður haldin á Grand hótel Reykjavík, þann 6. nóvember nk. og ber yfirskriftina "Leiðir til árangurs".

Aðalræðumaður ráðstefnunnar að þessu sinni er Bettina Jensen, forstöðumaður þjónustu- og rekstrarsviðs Danmarks Radio. Hún mun fjalla um skipulag innkaupa hjá DR og þann árangur sem þar hefur náðst fram með greiningarvinnu, stefnumótun og ferlum, ásamt því að ræða framtíðarsýn DR í innkaupum. Erindið ber titilinn "Procurement in Danish Broadcasting Corporation - analysis, policy, processes and the future" og er flutt á ensku.

Bettina hefur haft umsjón með innkaupum DR frá árinu 2001 þegar hún hóf það verkefni að umbylta öllum innkaupum DR. Verkefnið hófst á umfangsmikilli greiningu allra innkaupa til að fá yfirsýn yfir umfangið og leiðir til úrbóta. Í framhaldinu voru innkaupin endurskipulögð ásamt því að sett voru fram háleit markmið um árangur.

Á fjórum árum náðu þau fram sparnaði sem nemur um 100 milljónum DKR og sáu fram á að tvöfalda þá upphæð fram til ársins í ár.

Þess má geta að Bettina var kosinn kosinn innkaupamaður ársins í Danmörku í kjölfar þessa verkefnis.

Sjá grein um Bettina Jensen og innkaup DR frá 2006.

 

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.