Olíustöð í Hvalfirði - Tilboð verða opnuð 10. október
Fyrirspurnir og svör eru birt á vef Ríkiskaupa
Óskað er eftir tilboðum í húseignir, tækjabúnað og bryggju fyrrum Olíubirgðastöðvar NATO í Hvalfirði ásamt lóð c.a. 18,6 ha. að stærð.
Undanskilið við sölu lóðarinnar er vegstæði þjóðvegar, Hvalfjarðarvegar. Um er að ræða m.a.: Olíutanka, uppskipunarbryggju fyrir olíu, svefnskála og ýmsar aðrar byggingar tengdar fyrrum rekstri olíustöðvarinnar auk þess búnaður sem í stöðinni er og tilheyrði rekstri hennar.
Áætlaður afhendingartími er við greiðslu kaupverðs. Upplýsingar veitir Guðjón Hafliðason umsjónarmaður Olíustöðvarinnar í Hvalfirði í síma 659 0676 og Ríkiskaup í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá framangreindum aðilum.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum á þar til gerðum tilboðseyðublöðum fyrir kl. 10.00 þann 10. október 2007 þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.
Erindi Hvalfjarðarsveitar, dags. 26. september 2007
Svar Ríkiskaupa við erindi Hvalfjarðarsveitar, dags. 3. október 2007

