Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Energy

Ríkiskaup bjóða út raforkukaup LSH

Fyrsta útboð Ríkiskaupa á raforku hjá ríkinu

3.10.2007

Ríkiskaup fyrir hönd Landspítala-háskólasjúkrahúss óska eftir tilboðum í raforku, með og án aflmælingar. Um er að ræða raforkukaup fyrir 43 starfsstöðvar LSH í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum.

Forsenda útboðs eru breytingar á lagaumhverfi raforkuviðskipta sem leyfa samkeppni í orkusölu. Miklar vonir eru bundnar við jákvæða niðurstöðu útboðsins sem yrði þá hvati fyrir aðrar ríkisstofnanir og fyrirtæki að gera slíkt hið sama.

Í útboðinu er óskað er eftir tilboðum í kaup á raforku en ekki dreifingu og er stefnt að opnun tilboða 13. nóvember nk.

Sjá einnig frétt í Viðskiptablaðinu í dag.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica