Fréttalisti

Nordnet ráðstefnan 2007

19.9.2007

Nordnet-2007

Ráðstefnan er haldin 26-28. september á Hótel Nordica.

Í samvinnu við Háskólann í Reykjavík hafa valist á ráðstefnuna heimskunnir fyrirlesarar á borð við fjármálasérfræðinginn Prof. Mark Williams frá Boston University og framkvæmdasérfræðinginn Dr. Marc Sachon frá IESE.

Íslensku aðalfyrirlesararnir eru ekki síður áhugaverðir en þeir eru Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður og Baltasar Kormákur athafnamaður, leikstjóri, framleiðandi og leikari.

Í fyrirlestrum verður fjallað um verkefni og áhættu frá ólíkustu sjónarhornum s.s.:

  • Áhættustjórnun í fjármálaþjónustu
  • Ófyrirséða atburði og áhættu
  • Verkefnastjórnun við Kárahnjúkaverkefnið
  • Sálrænar hindranir nýsköpunar og aðferðir til að yfirstíga þær
  • Fræðilegt yfirlit áhættustjórnunar í verkefnum
  • Bankastarfsemi og áhættustjórnun – fortíð, framtíð og nútíð
  • Djúpborun á Íslandi, samvinnuverkefni yfir 100 vísindamanna og verkfræðinga
  • Áhættu sem felst í því að velja fólk í verkefnishópinn
  • Framleiðslustjórnun m.v. breytilega eftirspurn
  • Árangursrík samskipti í verkefnishópi

Athygli er vakin á því að allir fyrirlestrarnir fara fram á ensku.

Frekari upplýsingar, s.s. ítarlega dagskrá ásamt upplýsingum um fyrirlesara og fyrirlestra og skráningarsíðu er að finna ávef ráðstefnunnar : http://www.congress.is/nordnet2007

Fjölmörg fyrirtæki leggja ráðstefnunni lið, þau helstu eru Landsnet, Háskólinn í Reykjavík, Landsvirkjun og RARIK. Á heimasíðu ráðstefnunnar er að finna tæmandi lista yfir styrktaraðilana.

Nánari upplýsingar veita Guðmundur Hannesson, sími 530-1400 / 693-1424, gh@rikiskaup.is og Sigurlína Ingvarsdóttir sími 694-9732, lina@ccpgames.com.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.