Fréttalisti

gamar

Tilboð opnuð í gegnumlýsingartæki fyrir Tollstjóraembættið

Um 66 milljóna króna munur reyndist á hæsta og lægsta boði

31.8.2007

Mikill munur reyndist á hæsta og lægsta tilboði í útboði á gegnumlýsingarbúnaði fyrir gáma sem Ríkiskaup unnu fyrir Tollstjórann í Reykjavík.

Um 66 milljóna króna munur var á hæsta og lægsta tilboði. Þrjú tilboð bárust og hljóðaði hæsta boð upp á um 181 milljón króna en lægsta boð var tæpar 115 milljónir.

Það var kínverskt fyrirtæki, Nuctech Company Ltd., sem átti lægsta boð og Smith og Norland í samvinnu við Smiths Heimann GmbH áttu hæsta boð. Þriðja tilboðið sem hljóðaði upp á um 152 milljónir átti bandarískt fyrirtæki, Rapiscan Systems Ltd.,sem er með útibú í fjölmörgum löndum.

Þegar undirbúningur útboðsins hófst var gert ráð fyrir að markaðsverð á hliðstæðum búnaði væri í kringum 200 milljónir króna, þannig að hér er um gífurlegan sparnað að ræða fyrir íslenska ríkið.

Farið verður vandlega yfir þau tilboð sem bárust og ákvörðun tekin á næstu vikum um hvaða tæki verður fyrir valinu.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.