Fréttalisti
Milljónasparnaður með rammasamnings- útboðum Ríkiskaupa
LSH sparar um 12M á seymum og heftum.
Á vef Landspítala - háskólasjúkrahúss kemur fram að um 12 milljónir króna sparast samkvæmt niðurstöðum rammasamningsútboðs innkaupa- og vörustjórnunarsviðs LSH á seymi og hefti miðað við notkun sjúkrahússins á einu ári.
Seymi er notað til að loka skurðsárum og sauma líffæri og er líka nefnt saumur. Hefti eru notuð í sama tilgangi og seymi í sérvaldar aðgerðir. Árið 2006 var notað seymi og hefti fyrir 88,5 milljónir króna en sama magn kostar samkvæmt útboðinu 76,5 milljónir.
Sparnaðurinn jafngildir um 13,6 prósentum. Seymi verður að mestu leyti fengið frá Icepharma, umboðsaðila Ethicon hér á landi, en jafnframt var samið við Fastus, umboðsaðila Tyco, um nokkur vörunúmer sem Ethicon bauð ekki. Samið var við Fastus um kaup á hefti.

