Tilboð opnuð í FS-net
Tilboð voru opnuð í dag í FS-net. Sjö tilboð bárust frá fjórum aðilum.
Tilboð í FS-net voru opnuð í dag í húsakynnum Ríkiskaupa að vistöddum fulltrúum bjóðenda auk aðila frá menntamálaráðuneyti og Ríkiskaupum. Sjö tilboð bárust frá fjórum aðilum.
Ríkiskaup fyrir hönd menntamálaráðuneytisins, stóðu fyrir þessu útboði á víðnets- og Internetþjónustu fyrir aðila FS-netsins(sjá www.fsnet.is).
Markmiðið með útboðinu var að veita aðilum FS-netsins sem hagkvæmasta lausn fyrir greið samskipti sín á milli um eigið net sem og út á Internetið. Lausninni er ætlað að styðja við nýtingu upplýsingatækninnar til menntunar- og þekkingaröflunar en síðast en ekki síst til hvers konar fjarfunda- og fjarkennslu um allt land.
Leitað er eftir einfaldri og gegnsærri framsetningu á verðskrám í tilboðum þar sem skýrt kemur fram hvaða þjónusta er innifalin í tilboði og hvaða þjónusta er ekki innifalin.
Útboðinu var skipt í tvo hluta:
I. Víðnet og þjónusta
a. Tengingar inn á IP víðnet um ljósleiðara, leigulínur eða xDSL.
b. Virðisaukandi þjónusta eins og póstgáttir, skimun á pósti, afritatökur og ADSL heimatengingar.
c. Þjónustuborð.
II. Internet gátt
Tilboðin sem bárust voru frá Símanum, Vodafone, Hringiðunni og Skýrr.
