Tilboð opnuð í prentun
7 tilboð bárust
7 tilboð bárust frá jafnmörgum bjóðendum. Um er að ræða rammasamningsútboð og stefnt er að því að semja við a.m.k. 1-2 birgja sem geta sinnt vörusölu og þjónustu í öllum umbeðnum vöruflokkum útboðsins og öllum einstökum liðum innan þeirra, þannig að áskrifendur rammasamningakerfisins geti fengið sem flesta prentgripi á einum stað.
Útboðinu var skipt upp í 3 yfirflokka með undirflokkun sbr.:
I – Bréfsefni
- Bréfsefni og reikningar (90 gr. pappír)
- Eyðublöð í einriti (80 gr. pappír)
- Nafnspjöld og kveðjukort
- Sjálfafritandi eyðublöð (NCR pappír)
II - Umslög
- Umslög
III – Skýrslur og bæklingar
- Bæklingar 9.9x21.0 cm. "Túristabrot"
- Skýrslur í 1/1 eða 2/2 litum
- Skýrslur litprentaðar (Ársskýrslur o.fl.)
- Skýrslukápur og bök
Þá er einnig stefnt að því að semja við aðila, sem geta boðið hagstæð tilboð í einstaka vöruflokka útboðsins. Við mat á tilboðum verða tilboð bjóðenda flokkuð í A eða B flokk.
Flokkur A: Bjóðendur í alla vöruflokka útboðsins.
Í þennan flokk verða valdir til mats 5-6 bjóðendur sem mesta veltu samtals hafa af bjóðendum í skilgreindum vöruflokkum þessa útboðs. Þá skulu bjóðendur í flokki A bjóða afslátt af (heildar)verðlista sem skal fylgja tilboði. Bjóðendur sem ekki verður samið við þessum flokki verða sjálfkrafa færðir í flokk B og keppa þar við bjóðendur í einstaka vöruflokka útboðsins.
Flokkur B: Bjóðendur í einstaka vöruflokka útboðsins.
Tilboð verða metin í einstökum boðnum vöruflokkum. Heimilt er að bjóða í alla flokka útboðsins.

