Ríkisstarfsemi færð á samkeppnismarkað
Iðnmennt ses kaupir landakortagrunna Landmælinga Íslands
Í lögum um landmælingar og grunnkortagerð sem samþykkt voru á Alþingi þann 3. júní 2006 eru ákvæði um að sá þáttur starfsemi Landmælinga Íslands er snýr að sölu og dreifingu á prentuðum kortum og geisladiskum skuli færður á samkeppnismarkað og var stofnunni gert skylt að bjóða út lager prentaðra korta og geisladiska og réttindi honum tengd fyrir 1. janúar 2007.
Um er að ræða vinsæl ferðakort, kortabækur og kort á geisladiskum sem hafa selst í allt að 15.000 eintökum á ári hver titill. Markmiðið er að draga stofnunina út úr samkeppni við einkafyrirtæki sem stunda kortaútgáfu til þess að stofnunin geti betur sinnt grunnverkefnum á sínu sviði.
Ríkiskaup höfðu umsjón með útboðinu á landakortagrunnunum fyrir Landmælingar Íslands. Útboðinu var skipt upp í fimm hluta og reyndist mikill áhugi fyrir þessari starfsemi. Sex tilboð bárust þar sem Iðnmennt ses bauð hæsta verð eða um 29.8 milljónir króna.
Iðnmennt ses. var stofnuð 22. október 1999 úr Sambandi iðnmenntaskóla og IÐNÚ bókaútgáfu sem höfðu þá starfað í 50 ár. Stofnendur Iðnmenntar, sem er sjálfseignarstofnun, voru fimmtán aðildarskólar Sambands iðnmenntaskóla. Iðnmennt er ætlað að stuðla að eflingu iðn-, tækni- og starfsmenntunar, m.a. með útgáfu og dreifingu námsgagna til iðn-, tækni- og starfsmenntaskóla í landinu undir útgáfuheiti IÐNÚ. Auk bókaútgáfu starfrækir Iðnmennt prentstofu og IÐNÚ bókabúð í Brautarholti 8 í Reykjavík.
Sjá einnig frétt á Skessuhorni frá 29. desember sl. og á vef Landmælinga íslands.
Ríkiskaup hafa þegar auglýst eftir tilboðum í lager prentaðra korta og geisladiska og rennur tilboðsfrestur út í janúarlok. Hægt verður að skoða kortin hjá Landmælingum Íslands, Stillholti 16-18, dagana 22. - 24. janúar, eftir nánara samkomulagi. Kauptilboðum skal skilað til Ríkiskaupa, Borgatúni 7, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 þann 31. janúar 2007Sjá

