Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2006
Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þann 7. nóvember n.k.
Markmið ráðstefnunnar er að kynna þá miklu þróun sem orðið hefur í innkaupamálum síðustu ár og þau tækifæri sem fram undan eru.
Ráðstefnan hefst kl. 9.00 með vinnustofum þar sem meðal annars verður hægt að kynna sér IP-tæknina og áherslur Ríkiskaupa í verkefnastjórnun.
Eftir hádegi verða fyrirlestrar um margvísleg málefni er tengjast opinberum innkaupum. Kynnt verður nýtt frumvarp til laga um opinber innkaup, fjallað verður um siðfræðilega ábyrgð í innkaupum, rafræn niðurboð o.fl. Árni Mathiesen fjármálaráðherra flytur ræðu og meðal fyrirlesara verða fulltrúar frá Alcan á Íslandi, Alcoa Fjarðaáli, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ.
Skráning á ráðstefnuna er hafin og fer hún fram á vef Ríkiskaupa eingöngu. Þátttökugjald er 13.500 kr. á mann og er hádegisverður innifalinn í því gjaldi.
Dagskrá og allar nánari upplýsingar eru einnig á vefnum.
