Fréttalisti

Fréttalisti

Athugasemd frá Ríkiskaupum vegna afhendingar gagna til Atlantsolíu

20.7.2006

Ríkiskaup afhenda í dag Atlantsolíu umbeðin gögn varðandi rammasamninga um eldsneyti,olíur og aðrar rekstrarvörur fyrir ökutæki og vélar við Skeljung og Olíufélagið ESSO, frá apríl 2003, í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál í þessum mánuði.

Ríkiskaup vilja árétta að opinber innkaup eru háð ströngu regluverki,sem m.a. byggir á megin reglum tilskipana Evrópusambandsins um jafnræði og gegnsæi.

Þar er einnig fjallað um trúnað við samningsaðila varðandi viðkvæm viðskiptamál.

Ríkiskaup leitast hverju sinni við að feta hinn mjóa veg trúnaðar við samningsaðila og kröfur utanaðkomandi fyrirtækja um viðskiptaupplýsingar.

Það er ekki ætíð sjálfgefið hvað eigi að afhenda af slíkum trúnaðarupplýsingum og hvað ekki. Í málum sem þessum er það því vinnuregla hjá Ríkiskaupum að láta reyna á slík álitamál hjá til þess settum úrskurðaraðila – Úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Ríkiskaup fara að sjálfsögðu eftir úrskurðum nefndarinnar hverju sinni.

Ríkiskaup fagna komu nýrra viðskiptaaðila á alla samkeppnismarkaði er varða opinber innkaup.

Fyrirtækið Atlantsolía er þar ekki undanskilið. Við bjóðum fyrirtækið velkomið til leiks í útboði um eldsneyti, en undirbúningur þess útboðs hefst í haust.