Rammasamningur Ríkiskaupa um sjónvörp, hljómtæki, heimilistæki og önnur raftæki framlengdur um eitt ár
Samningurinn tekur gildi þann 1. júlí nk. og gildir til 30. júní 2007
Ákveðið hefur verið að rammasamningur Ríkiskaupa um sjónvörp, hljómtæki, heimilistæki og önnur raftæki verði framlengdur um eitt ár.
Samningurinn tekur gildi þann 1. júlí nk. og gildir til 30. júní 2007.
Velta samningsins á síðasta ári var um 14 mkr en að mati seljenda og verkefnastjóra Ríkiskaupa er enn mikið keypt af þessum búnaði utan samnings af opinberum aðilum.
Samningurinn tryggir notendum hans allt að 20% afslátt frá almennu listaverði birgjanna en alls óvíst er um þau kjör sem verið er að kaupa eftir utan samnings.
Væri samningurinn nýttur til fulls mætti gera ráð fyrir umtalsverðum viðbótarsparnaði í ríkiskassann á næsta samningstímabili sem er eitthvað sem ætti að vekja notendur til umhugsunar um hvaða innkaupaleið er valin.
Birgjar í samningnum eru:
|
Sjónvarpsmiðstöðin ehf Síðumúla 2 108 Reykjavík S: 568 9090 |
Heimilistæki ehf Sætúni 8 105 Reykjavík S: 569 1500 |
Bræðurnir Ormsson ehf Síðumúla 9 108 Reykjavík S: 530 2800 |
Samningurinn nær yfir sjónvörp og tengdan búnað eins og myndbandstæki og DVD spilara, hljómtæki, stafrænar myndavélar sem og öll rafknúin heimilistæki frá þvottavélum, þurrkurum og stærri eldhústækjum, allt niður í brauðristar og rafknúna dósaopnara.
Samningurinn var fyrst gerður í júní 2004 og tók þá við af eldri rammasamningi sem náði einungis yfir sjónvörp, hljómtæki og skyldan búnað en eins og allir vita hefur flóran í þessum tækjageira aukist stöðugt með tilkomu nýrrar tækni.
Allar vörur í þessum samningi má panta á rafræna markaðstorginu www.rm.is
sem eykur enn á hagræði samningsins.
Þar má einnig finna samninginn í heild sinni ásamt nánari vörulista og afsláttarkjörum.
Tengiliður samnings hjá Ríkiskaupum er þórhallur Hákonarson, verkefnastjóri á Ráðgjafasviði.
Allar nánari upplýsingar um Ríkiskaup og rammasamninga almennt er að finna á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is
