Fréttalisti
Tveir fræðslufundir hjá Ríkiskaupum í apríl
Í apríl verða tvær vinnustofur haldnar á vegum Ríkiskaupa. Þann 25. apríl kl. 10 - 12 verður fundur í Vesturporti Ríkiskaupa við Borgartún þar sem fjallað verður um hvað ræður vali við töku tilboða. Án efa er hér um áhugavert efni fyrir marga að ræða.
Dagskrá þess fundar er eftirfarandi:
1.Útboðsferlið – Guðmundur Hannesson
–Þarfagreining, kröfulýsing
–Útboðsgögn
–Umræður
HLÉ
1.Matslíkan – Magnús Geir Sigurgeirsson
–Meta eiginleika og gæði vs verð
2.Matsmódel frh. – Pétur Pétursson
–Matsmódel við stærri verkefni
– Eftirfylgni við samninga
Umræður
Síðari fundurinn verður haldinn á Grand Hótel föstudaginn 28. apríl kl. 14 - 16. Þar verður m.a. fjallað um útboð á lækningatækjum og framkvæmd þeirra.
Dagskrá er eftirfarandi:
1. Framkvæmd útboða, lög og reglur (Ríkiskaup)
–Hlutverk Ríkiskaupa
–Framkvæmd útboða
–Fara yfir lög og reglur sem gilda um útboð
–Íslenska útfærslan á lagaramma Evrópusambandsins
–Tilmæli til bjóðenda vegna þessa
–Stuttar spurningar, 3-5 mín
2. Útboðslýsingar og útboð LSH (LSH)
–Uppbygging útboðslýsingar
–Þarfalýsing en ekki tæknileg smáatriði : Bjóðendum geta boðið mismunandi lausnir eða samsetningar til að uppfylla þarfir
–Einstakir kaflar úboðslýsingarlýsingar
–Tilmæli til bjóðenda vegna þessa
–Munum kynna væntanleg útboð á árinu
–Stuttar spurningar, 3-5 mín
–
Hlé og kaffiveitingar
3. Umræður og spurningar, (30 – 60 mín)
Pallborð frá Ríkiskaupum og LSH
Vinsamlega skráið þátttöku til birna@rikiskaup.is
