Niðurstöður í forvali um smíði á nýju varðskipi liggja fyrir
Niðurstaða er fengin í forvali um hönnun og smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Eingöngum bárust þátttökutilkynningar frá erlendum skipasmíðastöðum og voru þær frá eftirfarandi aðilum:
Aker Brattvaag Skibsverft A/S., Noregi.
Asmar, Chile.
Astilleros Armon S,A. Spáni.
Bergen Yards AS, Noregi.
Gdansk Stocznia Remontowa im, Póllandi.
Chantiers De' Atlantique (Alstom Naval), Frakklandi.
China Ship Building Trading Company, Kína.
Damen Shipyards Goringchem, Hollandi.
Devenport Royal Dockyard Limited, Englandi.
Fincantieri Cantieri Navali, Ítalíu.
Navantia S.A, Spáni.
Karstensens Skibsværft A/S, Danmörku.
Peene-Werft GmbH, Þýskalandi.
Simek A/S, Noregi.
Thyssen Krupp Marine Systems (TKMS), Þýskalandi.
Eftir yfirferð tilkynninganna var ákveðið að velja sex stöðvar til áframhaldandi þátttöku. Þær kröfur sem gerðar voru til þeirra vegna þessa eru m.a.: að þær væru viðurkenndar af Lloyds eða sambærilegum aðila, að vera með ISO vottun eða sambærilegt, að jákvætt eigið fé næmi a.m.k. 5 milljónum evra og að eiginfjárhlutfall sé að lágmarki 13%. Þá er gerð krafa um að viðkomandi hafi borgað öll opinber gjöld, sé með aðstöðu til að byggja skipin og geti byggt/afhent skipin á innan við 30 mánuðum frá undirritun samnings. Viðkomandi aðilar þurfa að hafa smíðað að lágmarki 2 sambærileg skip frá árinu 2000 sem eru starfrækt í Norðursjó eða á norður Atlantshafi.
Þau fyrirtæki sem uppfylltu þessar kröfur eru:
Aker frá Noregi.
Asmar frá Chile
Bergen frá Noregi
Damen frá Hollandi.
Peene – Werft frá Þýskalandi.
SIMEK frá Noregi.

