Fréttalisti

Fréttalisti
  • Mynd af skipi, flugvél og þyrlu

Forval um smíði á nýju fjölnota varðskipi fyrir LHG

25.11.2005

Ríkiskaup auglýsa um helgina eftir þátttakendum í forval vegna lokaðs útboðs um smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands og Dómsmálaráðuneytið.

Verkið felst í hönnun og smíði á nýju fjölnota varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands.

Gert er ráð fyrir að helsta hlutverk skipsins verði m.a. löggæsla á hafi, fiskveiðieftirlit innan efnahagslögsögu Íslands, leit og björgun á hafi og flutningur björgunarsveita við leit og björgun. Þá kemur fram í auglýsingu að hlutverk skipsins verði líka að þjóna sem stjórnstöð á hamfarasvæðum við Ísland sem og við leit og björgun. Skal skipið vera útbúið til að geta fengist við mengunarslys á hafi og geta gefið þyrlum eldsneyti á flugi. Miðað er við að skipið geti dregið allt að 150 þúsund tonna skip.

Forvalsgögn verða til afgreiðslu hjá Ríkiskaupum frá og með mánudeginum 28. nóvember  n.k. en þátttökutilkynningar skulu berast Ríkiskaupum eigi síðar en 12. janúar 2006 kl. 11.00.