Breytingar á fræðslusyrpu Ríkiskaupa
Fræðslusyrpa Ríkiskaupa hefur fengið fínar undirtektir hjá aðilum að rammasamningakerfinu. Fundir þeir sem þegar hafa verið haldnir hafa verið mjög vel sóttir og menn almennt ánægðir með framtakið. Tilefni syrpunnar var að gamla möppukerfið var aflagt og þurfti því að miðla upplýsingum með öðrum hætti. Sérstakar kynningar á rammasamningum eru til dæmis nauðsynlegar þar sem ekki eru lengur sendir út verðlistar. Til þess að mæta þörfinni fyrir upplýsingar var ákveðið að efna til fræðslusyrpunnar með áherslu á rammasamninga og nýjungar á sviði innkaupa.
Sem fyrr sagði hefur aðsókn og móttökur farið fram úr okkar björtustu vonum en nú neyðumst við til að gera á henni tvær breytingar.
Kynningu sem átti að vera 17 október Nýir samningar um húsgögn, ritföng, pappír og skrifstofuvörur, sem og ljósritunar- og prentbúnað verður frestað um mánuð og flutt í stærri sal. Hún verður haldin 21. nóvember á Grand Hótel Reykjavík, í salnum Gallerý , kl. 9–12 .
Vinnustofan Frá mótherja til samherja sem fyrirhuguð var þriðjudaginn 25. október á Hótel Centrum v/Aðalstræti, fellur niður. Á móti kemur að erlendur sérfræðingur á þessu sviði Mette Amtoft mun flytja mjög áhugavert erindi um sama mál á Innkauparáðstefnu Ríkiskaupa sem haldin verður að þessu sinni 8. nóvember og verður kynnt rækilega síðar.
