Ríkiskaup f.h. innanríkisráðuneytisins hafa í samvinnu við norsk yfirvöld tilkynnt niðurstöðu forvals vegna fyrirhugaðra kaupa Landhelgisgæslu Íslands á nýrri leitar- og björgunarþyrlu. Eftirtalin fyrirtæki hafa verið valin og metin hæf sem bjóðendur í lokuðu innkaupaferli: Agusta Westland Ltd., Eurocopter SAS og Sikorsky International Operations Inc.. Fyrirhugað er að kaupa eina sérstaklega útbúna þyrlu til leitar- og björgunarstarfa fyrir Landhelgisgæsluna, til afhendingar á árinu 2018, með möguleika á að bæta síðar við öðrum tveimur þyrlum.
Ríkiskaup kynna fyrirhuguð útboð rammasamninga á vegum Ríkiskaupa á árinu 2012. Tilgangurinn er meðal annars að kynna áhugasömum birgjum og kaupendum þessi áform með góðum fyrirvara. Samningarnir eru almennt við helstu seljendur á viðkomandi markaði en allir áhugasamir birgjar eru hvattir til að kynna sér samningana og útboðin.
Lesa meira
Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á Grand hóteli 18. janúar undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Það er ánægjuefni að vefur Ríkiskaupa var í 10. sæti af vefjum ríkisstofnana með 82 stig af 100 mögulegum.
Lesa meira
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Innanríkisráðuneytisins býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og u.þ.b. 3.700 m² að stærð. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Lesa meira