Ríkiskaup kynna fyrirhuguð útboð rammasamninga á vegum Ríkiskaupa á árinu 2012. Tilgangurinn er meðal annars að kynna áhugasömum birgjum og kaupendum þessi áform með góðum fyrirvara. Samningarnir eru almennt við helstu seljendur á viðkomandi markaði en allir áhugasamir birgjar eru hvattir til að kynna sér samningana og útboðin.
Lesa meira
Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á Grand hóteli 18. janúar undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Það er ánægjuefni að vefur Ríkiskaupa var í 10. sæti af vefjum ríkisstofnana með 82 stig af 100 mögulegum.
Lesa meira
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Innanríkisráðuneytisins býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og u.þ.b. 3.700 m² að stærð. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Lesa meira
Skv. upplýsingum frá fjármálaráðuneyti sóttu 17 manns um starf forstjóra Ríkiskaupa, fjórtán karlar og þrjár konur. Fjármálaráðherra hefur skipað Halldór Ó. Sigurðsson til að gegna embætti forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára frá 1. janúar 2012. Halldór var áður deildarstjóri innkaupadeildar hjá Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Listi með nöfnum umsækjenda í stafrófsröð er birtur á vef Ríkiskaupa.
Lesa meira