Fræðsluröð
Raforkukaup ríkisins - Nýr rammasamningur
Fræðsluröð Ríkiskaupa - Hvernig notum við rammasamninga?
Ríkiskaup bjóða til kynningarfundar á Grand hótel, þar sem kynntir verða nýgerðir rammasamningar um kaup á raforku til fyrirtækja og stofnana ríkisins
Grand hótel, Sigtúni
Miðvikudaginn 28. október 2009
Klukkan 10.00 – 12.30
Fundi lýkur með léttum hádegisverði
Samningarnir ná til kaupa og dreifingu á raforku til fyrirtækja og stofnana ríkisins.
Niðurstöður útboðsins verða kynntar ýtarlega. Einnig verður fjallað um hvernig kaupendur geta nýtt sér samninginn sem best. Kaupendur fá tækifæri til að kynnast seljendum og ráðgjöfum eftir fundinn.
Ríkiskaup hvetja alla áhugasama kaupendur að koma og kynna sér samningana, fá ráðleggingar um hvernig beri að haga kaupum á þessari þjónustu og hvað hægt sé að gera til að reynslan af þessum samningum nýtist í framhaldinu.DAGSKRÁ:
10:00 Ríkiskaup kynna nýjan rammasamning um kaup á raforku fyrir stofnanir og fyrirtæki ríkisins - Friðrik Alexandersson og Rúnar Bachmann, ráðgjafar
10:30 Ljósgæði - Lífsgæði - Þórdís Rós Harðardóttir frá Verkís
11:00 Framtíðarljósgjafinn – Ljóstvistar - Daði Ágústsson frá Ljóstæknifélaginu
11:30 – 12:30 Seljendabásar í sal B
– Kynnið ykkur þjónustu og vöruúrval
– Spjallið við ráðgjafa
Fundi lýkur með léttu hádegissnarli í boði Ríkiskaupa
Þátttaka er ókeypis – Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í netfang: skraning@rikiskaup.is
