Eldri viðburðir
Kaupendafundur UT 10. mars
Hádegisverðarfundur um tölvu- og fjarskiptasamningana
Leitast var við að svara við spurningum eins og... :
- Hvernig er markaðurinn að breytast?
- Hvernig geta kaupendur nýtt sér breytt umhverfi sem best?
- Hvaða væntingar hafa kaupendur vegna breytinga á markaði?
- Skilur þú reikningana þína?
- Hvernig getum við aukið einfaldleika og gegnsæi?
Bjarni Júlíusson ráðgjafi okkar í tölvusamningunum fór yfir stöðu þeirra í dag , hvað eru seljendur að leggja áherslu á og hvernig kaupendur geti nýtt sér breytingar á markaði.
Halldór Kristjánsson, ráðgjafi okkar vegna fjarskiptasamninganna kynnti nýtt fyrirhugað fjarskiptaútboð í vor, nýjar áherslur í útboðsgögnum, einföldun og gagnsæi.
Reynsla kaupenda: nokkrir aðilar úr hópi stærstu kaupenda fóru yfir sína reynslu af samningunum.
Gunnar Linnet hjá Vegagerðinni,
Björn Jónsson hjá LSH.
Jónas Ingi Pétursson hjá Ríkislögreglustjóra
