Eldri viðburðir
Kynningarfundur 3. febrúar 2009
Fræðsluröð Ríkiskaupa - Hvernig notum við rammasamninga?
Fyrsti fræðslufundur ársins 2009 fór fram á Grand hótel Sigtúni, þriðjudaginn 3. febrúar. Meginefni fundarins var kynning á fyrirhuguðum útboðum ársins 2009 en einnig var farið yfir atriði eins og örútboð innan rammasamninga, auk þess sem nokkrir nýir og nýendurnýjaðir rammasamningar voru kynntir.
Valgerður Bjarnadóttir hjá Landspítala – Háskólasjúkrahúsi kynnti þau verkefni sem framundan eru á árinu hjá LSH í útboðum og innkaupamálum almennt og Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrar-og þjónustusviðs Landhelgisgæslunnar fór á eftirminnilegan hátt yfir skipulag innkaupa hjá þeim.
Glærur frá fundinum hafa verið settar inn hér að neðan.
Við minnum á að alla nánari upplýsingar um rammasamninga Ríkiskaupa er að finna á rammavefnum.
DAGSKRÁ:
1. Kynnt fyrirhuguð útboð hjá Ríkiskaupum á árinu - Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Rk.
2. Verkefni framundan hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi - Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri innkaupa- og vörustjórnunarsviðs
3. Kaffihlé
4. Örútboð innan rammasamninga - Haraldur H. Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum
5. Umræður
6. Landhelgisgæslan – skipulag innkaupa - Sólmundur M. Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrar-og þjónustusviðs Landhelgisgæslunnar
7. Kynning nýrra og nýendurnýjaðra rammasamninga:
Minnum á að fræðsluröðin heldur áfram og verður kynnt á vef Ríkiskaupa.
