Eldri viðburðir
Hvernig notum við rammasamninga?
Tölvu- og hugbúnaðarsamningur ásamt samningi um fjarskiptaþjónustu
Hér eru erindi þeirra sem fjölluðu um þessa samninga á kynningarfundi Ríkiskaupa á Grand hótel 18. mars.
Kynningarfundurinn var vel sóttur jafnt af kaupendum sem seljendum að tölvubúnaði, upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu.
Áhugavert var að skoða hvernig staðan á þessum mörkuðum hefur breyst og þróast og velta upp möguleikum fyrir væntanleg útboð á þessari þjónustu.
Við viljum minna kaupendur á nokkur mikilvæg atriði varðandi fjarskiptaþjónustu sem fram komu á fundinum:
- Allar stofnanir og fyrirtæki ríkisins eiga að rétt á gjaldfrjálsum símtölum milli stofnana, innan kerfis.
- Símtöl millis GSM síma starfsmanna og stofnunar innan kerfis eru gjaldfrjáls óháð því hvort að stofnun eða starfsmaður er skráður f. símanum, svo fremi sem símstöð kaupanda og GSM síminn séu skilgreind í sama hópi.
- Ný þjónusta eða tækni s.s. þriðjukynslóðarsímþjónusta fellur undir núverandi rammasamning.
- Ríkiskaup hvetja allar stofnanir og fyrirtæki, stór og smá til að skoða með gagnrýnum augum kaup sín á fjarskiptaþjónustu og fylgja því eftir að umsamin afsláttarkjör skv. rammasamningum séu að skila sér til kaupenda. Seljendum ber að upplýsa kaupendur um bestu kjör á hverjum tíma.
Kynning Halldórs Kristjánssonar, ráðgjafa í útboði á fjarskiptaþjónustu.
Kynning Björns Jónssonar, forstöðumanns UT deildar LSH.
Kynning Bjarna Júlíussonar, ráðgjafa í útboði á tölvubúnaði.
Kynning Gunnars Linnet, forstöðumanns UT deildar Vegagerðarinnar.
Á fundinum var einnig kynnt verkefni hjá Ríkiskaupum um rafrænt útboðskerfi; Útboða.
Kynning Júlíusar S. Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa
Kynning Sigurlaugar B. Stefánsdóttur, verkefnastjóra hjá Ríkiskaupum.
