Eldri viðburðir

Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2007 - Leiðir til árangurs

Glærur og annað efni frá ráðstefnunni

Aðalræðumaður ráðstefnunnar að þessu sinni er Bettina Jensen, forstöðumaður þjónustu- og rekstrarsviðs Danmarks Radio. Hún mun fjalla um skipulag innkaupa hjá DR og þann árangur sem þar hefur náðst fram með greiningarvinnu, stefnumótun og ferlum, ásamt því að ræða framtíðarsýn DR í innkaupum. Erindið ber titilinn "Procurement in Danish Broadcasting Corporation - analysis, policy, processes and the future" og er flutt á ensku.

Hægt er að lesa meira um Bettina Jensen hér.

Meðal annarra fyrirlesara má nefna Gunnar H. Hall, fjársýslustjóra sem mun fjalla um greiðslumiðlun og rafrænan reikning og Halldór B. Þorbergsson hjá Milestone með fyrirlestur um útvistun og einkaframkvæmdir. Helgi Þór Ingason, dósent hjá Háskóla Íslands verður síðan með fyrirlestur um verkefnastjórnun en allt eru þetta atriði sem tengjast opinberum innkaupum eða "Leiðir til árangurs".

Eftir léttan hádegisverð er boðið upp á fjórar mismunandi málstofur þar sem kynnt verða áhugaverð málefni.

Þar geta ráðstefnugestir valið milli málstofu um nýtt rafrænt markaðstorg, þar sem farið verður í hagnýt atriði sem tengjast því, jafnt fyrir kaupendur sem seljendur og málstofu um útboða og rafræn niðurboð sem hefjast kl. 13.00.

Í seinni umferð málstofanna er síðan annarsvegar boðið uppá málstofu um Samstarfsvettvang um opinber innkaup sem er samstarfverkefni Samtaka iðnaðarins, Ríkiskaupa, fjármálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og viðskiptaráðuneytis þar sem umfjöllunarefnið verður nýsköpun í ríkisrekstri.

Hins vegar verður boðið upp á málstofu um hugbúnaðarmál þar sem reynt verður að varpa ljósi á þann frumskóg sem hugbúnaðarkaup eða -leiga geta verið fyrir neytendann.

Ráðstefnunni lýkur síðan með léttri umfjöllun Jóns Gnarr um innkaup og þjónustu og boðið er upp á léttar veitingar.

Ráðstefnugjald er 13.500 kr.

Smellið á hnappana hér fyrir neðan til að skoða dagskrána og skrá ykkur á ráðstefnuna.

HNAPPUR_DAGSKRA                           hNAPPUR_SKRANING

  



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.