Eldri viðburðir
Fræðsluröð Ríkiskaupa
Næstu viðburðir - haust 2007
Ríkiskaup efna til fjölbreyttrar fræðsludagskrár í vetur.
Nú sem fyrr, verður boðið upp á kynningar, málstofur, námskeið og ráðstefnu um margvísleg mál er lúta að opinberum innkaupum.
NÆSTU VIÐBURÐIR
MÁLSTOFUR - NÝ LÖG UM OPINBER INNKAUP
11. september 2007 og 13. september 2007
10:00 - 12:00
Ríkiskaup, Borgartúni 7c
Ný lög um opinber innkaup tóku gildi 16. apríl 2007.
Þar sem færri komust að en vildu í vor þegar við kynntum nýju lögin bjóða Ríkiskaup enn á ný upp á 2 málstofur um lögin með áherslu á þau atriði sem tekið hafa breytingum frá eldri lögum.
DAGSKRÁ:
Guðmundur I. Guðmundsson , yfirlögfræðingur hjá Ríkiskaupum mun fara yfir þau atriði laganna sem helst snerta kaupendur og seljendur s.s.: nýjar viðmiðunarfjárhæðir vegna útboða, kærufrest í útboðum, kröfur um hæfi bjóðenda, atriði er tengjast EES tilskipunum ásamt ýmsum öðrum atriðum er snerta framkvæmd opinberra innkaupa.
Umræður
Stutt hlé
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa mun kynna það helsta sem er á döfinni hjá Ríkiskaupum auk þess að fara yfir nokkur helstu atriði í tengslum við hlutverk ábyrgðarmanns innkaupa.
KYNNING Á RAMMASAMNINGI UM PRENTUN
11. september 2007
Grand hótel, Hvammur
13:00 - 15.00
Nýr rammasamningur um prentun hefur verið undirritaður og af því tilefni efna Ríkiskaup til kynningar á samningnum.
Kynningin miðar að því að veita kaupendum allar helstu upplýsingar um kjör í samningi ásamt því að leiða saman kaupendur og birgja í samningi.
Vakin er sérstök athygli á erindi Ólafs H. Steingrímssonar um hagnýt atriði er varðar val og kaup á prentmunum.
KOMDU OG KYNNTU ÞÉR KJÖRIN Í EINUM AF STÆRRI RAMMASAMNINGUM RÍKISKAUPA OG LEGGÐU ÞITT AF MÖRKUM TIL AÐ NÁ NIÐUR KOSTNAÐI Í RÍKISREKSTRI
þá minna Ríkiskaup á hina árlegu
INNKAUPARÁÐSTEFNU RÍKISKAUPA
6. nóvember 2007
Grand hótel, Sigtúni
Ráðstefnan mun verða með örlítið öðru sniði en áður, þ.e. fyrir hádegi verður boðið upp á fjölda áhugaverðra fyrirlestra frá innlendum og erlendum fyrirlesurum.
Eftir hádegi verða síðan í boði málstofur/vinnustofur um ýmis hagnýt málefni er tengjast opinberum innkaupum.
Nánar um efni og fyrirkomulag ráðstefnunar verður kynnt síðar.

